
Í Mánaljósi
Kristín Helga Gunnarsdóttir
Í Mánaljósi hefur undirtitilinn „Ævintýri Silfurbergsþríburanna“. Það eru 12 ára gamlir þríburar, Íris Ína, Ísabella og Júlíus, sem eru aðalpersónur sögunnar og spannar frásögnin af ævintýrum þeirra rúmlega hálft ár en aðallega segir frá einu sumri sem þau eyða í Kaupmannahöfn. Í upphafi sögunnar eru þau fremur óhamingjusöm börn forríkra hjóna sem ausa yfir þau efnislegum gæðum en hafa engan tíma og takmarkaða ástúð að veita. Þau njóta hins vegar ástar og umhyggju filippeyskrar vinnukonu, Rósalindu.
Margar litríkar persónur koma við sögu í þessari bók. Þríburarnir, sem hafa hver sín persónueinkenni, eru sendir hálfnauðugir til sumardvalar hjá ömmusystur sinni, Emilíu Sólborgu, svo að foreldrarnir geti gengið frá skilnaði sínum, sölu og skiptingu eigna, og unnið sína vinnu og yfirvinnu án þess að börnin séu að flækjast fyrir. Emilía frænka býr í Mánaljósi í Friðarbæ, sem er hverfi í Kaupmannahöfn þar sem búa gamlir hippar og alls kyns furðufuglar (fyrirmyndin Kristjanía er auðþekkjanleg).
Hjá litskrúðugri Emilíu læra þríburarnir að setja andleg verðmæti ofar hinum efnislegu, auk þess sem þau kynnast bæði jákvæðum og neikvæðum hliðum hins fjölskrúðuga mannlífs í Friðarbæ.
Kristín Helga skrifar fjörlegan stíl og er leikin í að búa til aukafléttur inn í meginfrásögn sína þannig að frásögnin er alltaf lifandi og heldur athygli lesandans.
Faðir þríburanna, Svanur Silfurberg, er eiginlega sú persóna sem neikvæðust er í bókinni; hann virðist ekkert læra af skipbroti hjónabandsins. Móðir þeirra, Sigurlína, tekur hins vegar jákvæðum breytingum í rás sögunnar, svo og móðuramma þeirra, Karólína, sem fer í meðferð.
Í Mánaljósi er bók sem ætluð er eldri lesendum en fyrri bækur Kristínar Helgu. Þrátt fyrir að andstæðurnar séu hreinar og klárar þá er fjallað um alvarleg málefni í þessari bók; málefni sem snerta gildi og verðmætamat, hamingju og óhamingju, líf og dauða.
Duration - 6h 26m.
Author - Kristín Helga Gunnarsdóttir.
Narrator - Kristín Helga Gunnarsdóttir.
Published Date - Friday, 02 January 2026.
Location:
United States
Description:
Í Mánaljósi hefur undirtitilinn „Ævintýri Silfurbergsþríburanna“. Það eru 12 ára gamlir þríburar, Íris Ína, Ísabella og Júlíus, sem eru aðalpersónur sögunnar og spannar frásögnin af ævintýrum þeirra rúmlega hálft ár en aðallega segir frá einu sumri sem þau eyða í Kaupmannahöfn. Í upphafi sögunnar eru þau fremur óhamingjusöm börn forríkra hjóna sem ausa yfir þau efnislegum gæðum en hafa engan tíma og takmarkaða ástúð að veita. Þau njóta hins vegar ástar og umhyggju filippeyskrar vinnukonu, Rósalindu. Margar litríkar persónur koma við sögu í þessari bók. Þríburarnir, sem hafa hver sín persónueinkenni, eru sendir hálfnauðugir til sumardvalar hjá ömmusystur sinni, Emilíu Sólborgu, svo að foreldrarnir geti gengið frá skilnaði sínum, sölu og skiptingu eigna, og unnið sína vinnu og yfirvinnu án þess að börnin séu að flækjast fyrir. Emilía frænka býr í Mánaljósi í Friðarbæ, sem er hverfi í Kaupmannahöfn þar sem búa gamlir hippar og alls kyns furðufuglar (fyrirmyndin Kristjanía er auðþekkjanleg). Hjá litskrúðugri Emilíu læra þríburarnir að setja andleg verðmæti ofar hinum efnislegu, auk þess sem þau kynnast bæði jákvæðum og neikvæðum hliðum hins fjölskrúðuga mannlífs í Friðarbæ. Kristín Helga skrifar fjörlegan stíl og er leikin í að búa til aukafléttur inn í meginfrásögn sína þannig að frásögnin er alltaf lifandi og heldur athygli lesandans. Faðir þríburanna, Svanur Silfurberg, er eiginlega sú persóna sem neikvæðust er í bókinni; hann virðist ekkert læra af skipbroti hjónabandsins. Móðir þeirra, Sigurlína, tekur hins vegar jákvæðum breytingum í rás sögunnar, svo og móðuramma þeirra, Karólína, sem fer í meðferð. Í Mánaljósi er bók sem ætluð er eldri lesendum en fyrri bækur Kristínar Helgu. Þrátt fyrir að andstæðurnar séu hreinar og klárar þá er fjallað um alvarleg málefni í þessari bók; málefni sem snerta gildi og verðmætamat, hamingju og óhamingju, líf og dauða. Duration - 6h 26m. Author - Kristín Helga Gunnarsdóttir. Narrator - Kristín Helga Gunnarsdóttir. Published Date - Friday, 02 January 2026.
Language:
Icelandic
Tileinkun
Duration:00:00:41
Kynning
Duration:00:00:15
Kafli 1 - Fólkið í Gullvogarstræti
Duration:00:16:16
Kafli 2 - Vinir og bláhærðar verur
Duration:00:11:45
Kafli 3 - Glæpamenn í monopoly og röndóttur kjölturakki
Duration:00:16:16
Kafli 4 - Herra Silfurberg sækir fötin sín
Duration:00:14:02
Kafli 5 - Nýr engill í himnaríki
Duration:00:22:13
Kafli 6 - Bleikt sendibréf
Duration:00:39:10
Kafli 7 - Hippakerling á rauðri rúsínu
Duration:00:11:38
Kafli 8 - Himnagarðurinn
Duration:00:34:41
Kafli 9 - Sparikassaránið
Duration:00:28:59
Kafli 10 - Bókahús Bertu
Duration:00:30:47
Kafli 11 - Hans málari og myrku myndirnar
Duration:00:19:36
Kafli 12 - Herra Silfurberg sækir börnin sín
Duration:00:24:34
Kafli 13 - Halta krákan
Duration:00:14:31
Kafli 14 - Eitur í Mánaljósi
Duration:00:19:50
Kafli 15 - Leiðangur björgunarsveitarinnar
Duration:00:15:59
Kafli 16 - Syngjandi sjór
Duration:00:18:26
Kafli 17 - Slæmt karma í Mánaljósi
Duration:00:16:26
Kafli 18 - Letidagur Sigurlínu
Duration:00:14:36
Kafli 19 - Emilía Sólborg flýgur með austanvindi
Duration:00:15:06
Lokaorð
Duration:00:00:15